Merkilegt hvað ég toldi lengi við... en alla vega er ég búin að gefast upp á blog.central.is - Eina vandamálið er að ég kann ekkert á blogspot.com lengur. Kannski ég plati bloggóðu frænkur mínar til að taka mig á smá námskeið. Mér þykir afskaplega gaman á námskeiðum ;-)
Eitthvað þarf alla vega að gera í útliti síðunnar - ekki er hægt að hafa þetta eins og þegar ég skildi við hana fyrir um ári síðan. Ég segi frá síðustu vikum mjög fljótlega... ætla að byrja á að fikta mig áfram hérna.
Blessir - EM
þriðjudagur, maí 31, 2005
þriðjudagur, júní 01, 2004
Hef ákveðið að taka mér pásu hér í bili alla vega...
Er flutt á http://blog.central.is/esterm
fimmtudagur, maí 27, 2004
Jæja þá
Ýmislegt sem hefur á mína daga drifið að undanförnu. Ég er samt að hugsa um að tjá mig ekkert um það hér.
BLESS
mánudagur, maí 24, 2004
Rosalegar hamfarir þarna í Michigan-héraði. Allt í tómu tjóni vegna flóða og storma. Eins og tíðin getur nú verið slæm hérna heim að þá finnst mér við nú bara ansi heppin með veðurfarið. Ég verð nú bara að segja það. Auðvitað eru snjóflóðin hérna voðaleg og hafa eins og allir Íslendingar vita valdið miklum skaða og jarðskjálftar einnig, þótt að engin mannföll hafi orðiði við þá, en samt sem áður tel ég Íslendinga mega prísa sig sæla. Hér halda húsin vatni og vindum, stormar ná ekki að rífa kofana okkar upp af grunninum og ekki þurfum við að berjast við skógarelda. Þetta er náttúrlega snildarþjóð sem hér byggir land.
En úr öllum landfræðilegum veðurpælingum yfir í eitthvað allt annað. Eða kannski ekki bara, hausinn á mér er svo að segja bara fastur í þessum pælingum í augnablikinu. Ætla að reyna að láta blása aðeins í gegn hjá mér. Kannski sniðugt að leggja sig bara, þarf að vakna um miðja nótt og fara út á keflarvíkurflugvöll.
Kveðja Ester veðurfræðingur.
sunnudagur, maí 23, 2004
Magnað veður...
...ohh hvað mér það gott að sumarið sé að koma. Fæ alveg auka gír allatf á sumrin. Allt að gerast hjá mér í heimsóknunum. Lilja og Hörður litli komu til mín í gærkvöldi og gistu hjá mér í nótt. Við dunduðum okkur bara í rólegheitunum í dag og var þetta mjög notarlegt bara. Smá búðarráp og rúntur. Kíktum við hjá Björk systir og var hún í óða önn að sína myndirnar úr Svíþjóðarferðinni. Maður fær nú smá útþráar-fíling að skoða þetta. Hún var s.s. að koma frá Svíðþjóð þar sem hún var að skoða húsið sem hún er að flytja í og skólann hans Ívars Loga og leikskólann hans Sindra. Þau koma til með að flytja til "Norsesund" hvernig svo sem það er skrifað. Ég vona að ég sé alla vega að fara rétt með staðarheitið burt séð frá stafsetningunni. Nema hvað, bærinn er c.a. í 20 mín lestarfjarlægð frá Gautaborg. Hann er staðsettur við vatn og garðurinn sem fylgir húsinu þeirra er risa stór. Liggur alveg að vatninu, með eplatrjám og alls konar dóteríi. Það eru litlar smábátabryggjur út um allt við vatnið og Þetta virkaði allt mjög vel á mig. Verður ekki leiðinlegt að heimsækja þau í ágúst.. úff hvað ég hlakka til.
Var að setja linka inn á tvö ný börn. Jóhannes hennar Agnesar vinkonu og Torfa hans Kalla. Þau eru loksins komin með síðu. Fínt framtak. Já og sendi ég allar mínar óskir til Torfa sem er að fara í enn eina aðgerðina út í Boston. Gangi ykkur vel!
Jæja, en ég má ekkert vera að þessu núna því að í dag er ég, sem og svo oft áður "Esteralltþarfaðgerastíeinuoghelstígær"
Þangað til næst... bleh!
fimmtudagur, maí 20, 2004
Ég er búin að vera ótrúlega dúleg í dag!
Dagný frænka kom til mín í gærkvöldi og við kíktum aðeins á systu að skoða myndir af húsinu sem hún er að flytja í út í Svíþjóð og röltum svo aðeins í bæinn. Vöknuðum bara hressar í morgun, eða um hádegið og áttum eldhúsumræður til að verða 5. Þá keyrði hún mig að sækja bílinn minn... og svo setti ég sko í 5. gírinn. Búin að vera að þrífa og taka til í allan dag. Þvo þvott og skrúbba, meira að segja tók ég til í bílnum mínum og þreif hann að innan. Á bara eftir að ryksjúga hann. En ég held að ég viti ástæðuna fyrir þessum ótrúlega dugnaði í dag. Málið er að ég kláraði sígarettupakkann minn fyrr í dag og ákvað að prófa enn einu sinni að taka pásu. S.s. keypti mér ekki annan. Held að ég sé svolítið að dreyfa althyglinni með því að vera bara á fullu í allan dag. Merkilegt hvað ég er lítið búin að hugsa um að langa að reykja. En ég ætla engum að segja frá þessu... bara að sjá hvernig þetta gengur, kannski að ég kveiki mér bara í aftur á morgun ;-)
Jæja ég ætla að henda mér í rúmið að lesa, geyma eitthvað af draslinu heima hjá mér svo ég geti dreyft huganum á morgun líka. Þ.e.a.s. ef ég bugast ekki í vinnunni og skrepp út í smók.
Er að lesa fína bók núna... "Nýja Ísland" eftir Guðjón Arngrímsson. Nokkuð magnaðar frásagnir og gaman að vita hvernig þetta var allt saman og af hverju fólk flúði vestur í stríðum straumum.
þriðjudagur, maí 18, 2004
Kvöldverður á Borginni... eða hvað?
Já Elísabet mín kom til mín í kvöld og við ætluðum að eiga, já og reyndar áttum góða kvöldstund saman. Hittumst í Kringlunni þegar ég var búin að vinna og stefnan var að nota gjafakortið sem mér áskotnaðist á Hótel Borg. Nema hvað... eftir smá búðaráp var farið heim í Gnoðarvoginn og skipt um föt og stefnan tekin á Borgina. það vildi svo skemmtilega til að í anddyri hússins var matseðill og áður en nokkur gat boðið okkur aðstoð sína lásum við umræddan seðil, já og bökkuðum eiginlega út. Ekki svo að skilja að við hefðum eitthvað út á hann að setja, alls ekki. Þetta var ábyggilega allt rosa fínt þarna, en þar sem við skildum ekkert sem á honum stóð og erum í ofanálag báðar tvær rosa gikkir enduðum við í klassísku nautasteikinni á Askinum. Og mikið er hún alltaf góð. En kvöldið var samt sem áður mjög ánægjulegt þrátt fyrir að Borgin hafi svikið okkkur, já eða öllu heldur við svikið hana hehehe. Skoðuðum svo miðbæinn og settumst yfir kaffibolla og slúður á Kaffi París.
En út í aðra sálma. Mikið rosalega hlýtur að fara mikið fjármagn í helberan óþarfa í heiminum í dag. Þá á ég ekki við almenna neyslu einstaklinga, heldur það fjármagn sem fer t.d. í að rannsaka hina ótrúlegustu hluti. Var að renna yfir helstu fréttirnar á mbl.is og datt inn á grein þar... endilega kíkið á hana og segið mér hvað ykkur finnst um slík og því um líkt. Ekki svo að skilja að þetta sé mér eitthvert hjartas mál en mér þætti gaman að heyra skoðanir annara á þessu.
Linda sæta
Ingó fluffa
Elísabet mín
Dagný frænka
Fanney frænka